Tvífarar Vikunnar

laugardagur, apríl 18, 2009 by

Tvífarar Vikunnar

Tvífarar vikunnar að þessu sinni eru stórsöngvarinn Susan Boyle, og prúðuleikarinn Berti. Tvíburar aðskildir við fæðingu?

Tvífarar Vikunnar

fimmtudagur, janúar 8, 2009 by

Barnvænt | Banvænt

 

Tvífarar vikunnar eru að þessu sinni tileinkaðir fólkinu á Gaza svæðinu. Þessi tvö orð eru keimlík, en hafa samt töluvert ólíka merkingu.

Topp 10 – Sparnaðarráð

fimmtudagur, október 9, 2008 by

Nú þegar fjármál heimilanna eru í brennidepli og mjög sennilega á leið í tómt rugl, ef þau eru ekki nú þegar komin í rugl, er ekki seinna vænna en að huga að sparnaðarleiðum.

10 – Gosdrykkir - Hér á íslandi kemur endalaust kalt vatn úr krananum.

9 – Notaðar vörur - Manstu þegar maður keypti stundum notað dót, bíla og tæki? Þetta er alveg hægt að gera ennþá! Maður þarf ekki að eignast alltaf það nýjasta og flottasta, og þetta notaða var nú örugglega einusinni nýjast og flottast.

8 – Áramótaútsýnið - Ef þú ert að huga að íbúðakaupum skaltu hugsa þig um tvisvar áður en þú greiðir milljónir aukalega fyrir útsýnið eitt. Líkur eru á því að bankamennirnir í næsta hverfi hafi ekki efni á að láta Elton John kveikja í milljóna virði af púðri þannig það verður hvort sem er ekkert að sjá næstu áramót nema rigningu og vind.

7 – Orkudrykkir/kaffi - Farðu frekar bara fyrr að sofa. . . beib…

6 – Klipping - Fjárfestu í góðum skærum og láttu góðan vin snyrta og/eða lita lubbann einusinni í mánuði. Líklega mun fólk almennt skera niður í fegurðarútgjöldum þannig þú verður ekkert tuskulegri en við hin.

5 – Símreikningurinn - Talaðu hraðar í símann. Þú sparar og viðmælandi þinn líka! Gott ráð væri að hringja alls ekkert í Ömmu eða Afa nema á stórhátíðum.

4 – Bíllinn - Líttu niður… sérðu þetta tvennt sem er fast við þig um mjöðm og nær niðrá gólf?… Þetta kallast FÆTUR! Og að hugsa sér, það væri hægt að spara sér bensínkostnað með því að rölta stundum þangað sem þarf að fara. 

En ef þú neyðist til að fara á bílnum, EKKI eyða tíma í að rúnta um bílastæðið til að leita að stæði alveg fyrir framan innganginn, sá rúntur kostar þig bara bensín. Einnig gætir þú skipulagt bílferðirnar þannig að ef þú þarft að fara á marga staði þá gætir þú valið staði sem væru í nánd við hvorn annan, keyrt á svæðið sem þú þarft að fara, lagt miðsvæðis og rölt á milli staðanna.

Svo skaltu ekki elta einhver 2 kr. mismun af bensíni langar leiðir. Rúnturinn þangað er bara miklu dýrari fyrir þig þegar í heildina er litið.

Ekki heldur falla í þá gryfju að fara að versla í matinn langar leiðir á bílnum þó að verðið í uppáhalds búðinni sé kannski ódýrara. Mismunurinn á milli nær eflaust vel upp í bensínkostnað og slit á bílnum.

3 – Borðstofan nýtt í annað - Þetta herbergi er hvort sem er ekki notað nema hámark einu sinni í mánuði, jafnvel eingöngu á jólum. Breyttu þessu hrikalega vannýtta rými í eitthvað nytsamlegt. T.d. leikherbergi fyrir börnin, eða taktu upp einhverja aðra starfsemi þar sem gæfi af sér aukatekjur. Snobbdraumurinn um að bjóða vinum í rándýran mat, opna rauðvíns- og kampavínsflöskur og þykjast hafa vit á viðskiptalífinu er nú liðinn.

2 – Mojito - 1500 til 2500 kr. per drykk, kom-on!!… Í gosdeild Hagkaupa fást allskonar mixerar fyrir drykki. Fáðu þér fínan áfengispela og blandaðu í hann 60% ‘Mojito Mix’ + 40% Romm og hafðu hann í vasanum. Á barnum pantar þú þér svo sódavatn á 250 kr. Buddan þín mun þakka mér.

1 – Viðbótarlífeyrissparnaður - Ráðlegt er að kötta á þetta bara um leið og þú lest þetta. Gríðarlegar líkur eru á að peningamenn landsins verði búnir að eyða þessum sparnaði eða gera hann verðlausan hvort sem er áður en þú sérð eina krónu af þessu í ellinni.

Fóbboldi

föstudagur, júní 13, 2008 by

Dagskrárliðum í Sjónvarpinu er þessa dagana hliðrað hægri vinstri vegna íþróttaviðburða. Það er víst einhver keppni í gangi í einhverjum boltaleik sem enginn má missa af, ekki einni einustu mínútu.

Hef satt að segja ekki minnsta áhuga á þessu, en skil samt alveg fólk sem hefur þennan áhuga í sér. En það er hins vegar eitt sem ég skil ekki alveg og það er hvers vegna þetta tekur yfir alla dagskrá sjónvarps árlega. Er þetta eitthvað merkilegri viðburður heldur en hvað annað? Er þetta það merkilegt að það má alls ekki sleppa því að sýna nema kannski seinni hálfleik af einhverjum leikjum, og kannski bara úrslit dagsins af sumum. Sýnist Sjónvarpið bara vera að sýna þetta allt, Razzgatska-Lillaputtaland og hvaðeina í rúmlega 120 mínútur með umræðum.

Tek undir orð Þóru Þórarinsdóttur sem skrifar á baksíðu 24 stunda í dag, þar sem hún talar um að hugsanlega þurfi að troða þessu öllu bara á sér útsendingu, RÚV Sport, við getum bara látið okkur dreyma.

Í öll þau skipti sem ég hef byrjað á nýjum vinnustað er ein af fyrstu spurningum samstarfsmanna “Ertu Júnæted maður?” eða “Ertu Spursari? Hvað ertu?” . . . Hef alltaf svarað að ég hafi bara ekki áhuga á íþróttum, og þá kemur svona svipur á fólkið eins og það viti ekki hvað það á eiginlega að geta talað um við mig á kaffistofunni. “Sástu leikinn í gær?” er svo spurning dagsins sem ég svara óspart neitandi, eða með annarri spurningu eins og “hva.. í handboltanum?” þó ég viti vel að það er eitthvað fóbboltamót í gangi.

Hef sennilega verið talinn eitthvað skrítinn að vera ekki með mitt enska lið í uppáhaldi, og hef rætt við harða aðdáendur leiksins um að kannski þurfi ég bara að fara að prufa að fylgjast með… “Ferð á einn leik maður, stórleik erlendis.. þá ertu húkkd… öruggt mál.”

Minns fór á stórleik erlendis.. Arsenal-Bolton, á gamla velli Arsenal hvað sem hann nú heitir. Einn leikur búinn, samt ekki ‘húkkd’.

Minns fór svo á annan stórleik erlendis sama ár, og núna með ‘alvöru’ liðum. Liverpool-Celtic, og það á Anfield maður. Mekka púlarans. Tveir leikir búnir, samt ennþá ekki ‘húkkd’.

Báðar þessar ferðir voru samt alveg frábærar, enda var ég með frábæran félagsskap í bæði skiptin. Hins vegar þegar ég lít til baka þá eru leikirnir sjálfir lágpunktur beggja þessara utanlandsferða. Mannlífið í kringum leikina er hins vegar mjög skemmtilegt og gaman að fara á pöbbana fyrir og eftir leik að fylgjast með bullunum.

Á leikjunum sjálfum langaði mig hins vegar bara að teygja mig í fjarstýringuna og skipta um stöð, eða fá mér annan bjór.

Niðurstaða mín er sú að ég mun sennilega aldrei finna mig í áhugamannahóp þessarar íþróttar þó ég hafi reynt. Og til hamingju þið sem hafið áhuga á þessu, þessi sjónvarpstími er tileinkaður ykkur. Ég hins vegar bíð bara rólegur eftir því að sýnt verði beint frá hönnunarráðstefnum og auglýsingaverðlaunum erlendis sem ég hef áhuga á, og öllu öðru verður þá vonandi hliðrað til í dagskránni.

Samvist við Satan senn á enda?

föstudagur, júní 13, 2008 by

Það er skemmst frá því að segja að samvist okkar við Satan fer nú fljótlega að ljúka. Erum búin að eiga í töluverðu basli með Satan hér í dágóðan tíma, en útlit er fyrir að það sé nú að verða búið, enda Satan á leið að flytja sig um set.

Blóm og kransar afþakkaðir, en þrefalt húrra velkomið. Og samúð okkar fer öll til verðandi nágranna Satans, vonandi ert það ekki þú lesandi góður.

Símaskráin 2008

fimmtudagur, maí 29, 2008 by

Greip með mér nýju símaskránna í morgun af einhverri ástæðu, þó að ég noti nú netið fyrst og fremst til að finna símanúmer, en alltaf gott að eiga símaskránna líka “ef maður kæmist ekki á netið”, hugsaði ég.

Bjóst svosem ekki við miklu, enda símaskráin mjög þurrt rit og flokkast eflaust seint undir bókmenntir. Samt sem áður stóð ég mig að því að lesa hana og þar með er þetta fyrsta ‘bókin’ sem ég hef lesið á þessu ári.

Það sem kom mér fyrst á óvart við hana er að forsíðukápan er mjög fín, með teikningum eftir Hugleik Dagsson. En þegar betur var að gáð þá inniheldur símaskráin einnig litla sögu eftir Hugleik, í formi myndasögu neðst í horninu á síðunum, nánast í gegnum alla símaskránna. Þetta er skemmtileg lítil þjóðsaga sem hélt athygli minni frá upphafi til enda. Þessi lesning er svona ca. 20 mínútur en gerir það að verkum að símaskráin flokkast allavega í mínum huga sem bókmenntir.

Tvífarar vikunnar

þriðjudagur, apríl 15, 2008 by

Tvífarar vikunnar að þessu sinni eru þessir tveir nauðalíku karakterar.

Annar þeirra er tekinn úr auglýsingaherferð fyrir Heklu, sem er nýkomin út. Hinn er tekinn af erlendri vefsíðu sem er búin að vera á lífi í töluverðan tíma.

Veit ekki meira að þessu sinni um hvaða ástæður liggja að baki því að þeir séu þetta nauðlalíkir, eða hvort auglýsingastofan sem vinnur fyrir Heklu hafi keypt birtingaréttinn. Þeir sem þekkja til meiga endilega pósta inn kommenti hér að neðan.

Umferð

fimmtudagur, apríl 3, 2008 by

Vá, þessi umferð hérna í Reykjavík, vissi ekki hversu slæmt þetta væri orðið því maður er búinn að búa ‘miðsvæðis’ í nokkur ár (miðsvæðis = 105 Reykjavík). En nýlega vorum við beðin að passa hús fyrir fólk í Breiðholti og á degi eitt voru allir orðnir allt allt of seinir í vinnu og skóla. Þessi rúntur í umferðinni á milli 8:00 og 9:00 tók u.þ.b. 40 mínútur sem vanalega tekur okkur 8-10 mín. Ég undrast hvernig fólk getur sætt sig við þetta dag frá degi? Að búa hérna í sveitinni og þurfa að eyða svona miklum tíma af lífi sínu í umferðinni.

Okkur reiknast til að meðal Breiðholtsbúi sem eyðir 40 mínútum á dag fastur í umferðinni, eyði um 200 mín á einni vinnuviku í þetta. Það gerir samtals 9200 mínútur á ári miðað við 46 vikna ár (frátalið sumarfrí og helgidagar). Í dögum talið… þá eru þetta tæplega SEX OG HÁLFUR dagur á ári á leiðinni í vinnu og skóla!!

Hvers virði eru þessir dagar fyrir okkur? Jú, þeir eru þess virði að greiða aðeins meira fyrir íbúðir sem eru ‘miðsvæðis’. (Svo ég tala nú ekki um bensínkostnaðinn við það að keyra þessa 6 og hálfan dag samfleytt…)

Tvífarar Vikunnar

þriðjudagur, nóvember 27, 2007 by

doubles1.jpg

Mont færsla

miðvikudagur, nóvember 21, 2007 by

Pungurinn hennar mömmu sinnar er kominn með fyrstu tönnina. Degi eftir að 5 mánaða aldursmúrinn var rofinn. Daginn eftir (eða í dag) tók krílið sér það erfiða verkefni fyrir hendur og velti sér af bakinu yfir á magann, og ekkert lítið mont í okkur báðum.Annars byrjaði ég að vinna í fyrradag (þriðjudag) og hún mamma gamla er með Nikulás Nóa fyrir mig á meðan, hann er hjá henni í svona 4-5 tíma á dag en ég ætla að reyna að vinna líka heima. Fyrsta daginn mætti ég ekki fyrr en rétt fyrir hádegi, búin að vera með kvíðahnút í maganum allan morguninn yfir að yfirgefa ungann minn, hvað ég saknaði hans líka mikið fyrsta daginn. Málið er ekki að skilja við hann í þennan stutta tíma á dag, heldur að þurfa að gera það alla daga hér eftir, það er erfiði parturinn. Annars var það mamma sem fann tönnina og heima hjá henni velti hann sér á magann, á morgun býst ég við að hann skríði á móti mér og segi “mamma ég er svangur, gef mér mat”.Ný mynd þar sem hann er búinn að borða yfir sig og gubba meira að segja.img_2116.jpg


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.